Feeds:
Færslur
Ummæli

Aftur eigum við möguleika á að komast í undanúrslid Carlsbergbikarsins. Kjartan Gudjohnsen er dottinn á miðjuna, það er allt hægt. Við vinnum leikinn!

27. mars

2. Mars

 

Baráttan heldur áfram

Útihlaup 20.febrúar

Baldur vaknaði eldsnemma á sunnudegi, lagaði hafragraut með rúsínum og lagði síðan af stað í hlaup sem á eftir að komast í sögubækurnar. Eftir þrotlausar æfingar í Crossfit, skvassi og nú síðast fimleikum gerði Baldur sér lítið fyrir og sló Íslandsmet Jóns Diðrikssonar í 2400 metrunum!

Baldur hljóp hringinn á 7 mín og 22 sek sem er bæting um heilar 9 sekúndur. Tíminn fæst að vísu ekki skráður þar sem engin vitni voru á staðnum. Miðað við árangurinn sem hefur náðst á undanförnum mánuði er aldrei að vita nema að Baldur fari að blanda sér í baráttuna um heimsmetið.

 

28. Janúar – samantekt

Dugnaðurinn í helmingnum af hlaupahópnum Dagbjörtu er til mikillar fyrirmyndar. Í annað hlaupið mættu Baldur og Ásgeir. Geiri bætti sig um heila mínótu, úr 11 mín 50 sek  í 10 mín og 50 sek. Hástökkvari hlaupsins var enginn annar en Balli. Úr 13 mín 30 sek datt hann niður í 11 mín og 4 sek. Skyrkenningin hefur semsagt haft rétt á sér.

Persónulega er mér mikið í mun að halda utan um tíma hlaupanna. Ég hef sett mér það markmið að ná hringnum á 8 mín og 30 sekúndum fyrir sumarið. Tímarnir verða færðir í excel og mun ég vikulega birta uppfærða töflu þar sem hægt er að sjá bætingu og bera sig saman við hina. Ekkert er því til fyrirstöðu að menn hlaupi hringinn oftar en einu sinni í viku en þá myndi ég gjarnan vilja fá tímana senda í tölvupósti.

Ég fordæmi forföll Kjarra og Sigga.

Í næstu hlaup vil ég mælast til að hver og einn komi sjálfur með skeiðklukku. Hvort sem að hún er í símanum eða hefðbundin.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.